laugardagur, mars 18, 2006

tilbreyting

já stærsti viðburður lífs míns þessa dagana var að labba niðrí bæ og mér til mikillar gleði sá ég að Odd Nerdrum hefur lagt Hvítu víkingskápunni og er kominn í ansi herralegan frakka, já ekki alveg sama ásýnd en skemmtileg tilbreyting.
Fór í KB banka á vesturgötu til að losa mig við tugi þúsunda sem við höfðum safnað uppí krukkum hér og þar og mér til mikilla skelfingar var gjaldkerinn þar með allan vanda heimsins á herðum sér og ég var þarna mættur til að leggja líf hennar endanlega í rúst og fékk sko alveg að finna fyrir því að ég hafði ekki flokkað erlenda mynt frá þeirri íslensku og stóð hún og grýtti myntinni sem fastast á borðið til að leggja áherslu á hvað ég væri nú búinn að gera HENNI og eftir að ég var búinn að taka smá kast á hana sá ég að alheimsvandamál hennar væru stærri en ég hefði áhuga á að takast á við þarna í litla útibúinu, þannig að ég sá mér fátt annað fært en að biðja hana innilegrar afsökunar á þessu, og þvílík vitleysa þetta væri nú hjá mér að vera að bera allt þetta klink með mér heim, hefði nú frekar átt að gefa einhverjum fátæklingnum það, þakkaði svo innilega fyrir mig og óskaði henni góðrar helgar.....samstarfskonurnar flissuðu í sínum básum og ég gekk sæll út með seðlana mína.

3 Comments:

At 7:15 e.h., Blogger Dúskur said...

Það er eins og menn segja:
"Hver hefur sinn djöful að draga"
Mundu að vandamál annarra þarf ekki að verða þín eigin! :)
Ég hugsa alltaf með þegar ég mæti slæmu viðmóti: Að ég er of frábær til að láta dragast inn í vítahring djöfulsins! Og það ert þú líka!!! :)hihi

 
At 12:18 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hei.. hvad aetlid thid ad búa lengi í London City og í hvada hverfi.. Vid munum nefnilega hanga gedveikt utan í ykkur frá og med sept.

 
At 7:41 f.h., Blogger Fjalar said...

oh við erum komnir hingað til London og búum í Willsden Green hverfinu sem virkar vel á okkur

 

Skrifa ummæli

<< Home